Kynningasmækkarinn er notaður til að minnka skráastærð þeirrar skyggnukynningar sem verið er að vinna með. Myndefni er þjappað og þau gögn sem ekki er lengur þörf fyrir verða fjarlægð.
Kynningasmækkarinn getur bestað stærð og gæði myndefnis. Kynningar sem ætlaðar eru fyrir skjái eða skjávarpa krefjast ekki sömu gæða og kynningar sem ætlaðar eru til prentunar.
